24.3.2012 | 13:15
MANNKYNISTAR, nýr hópur !!
Ég legg til að stofnaður sé hópur sem kallar sig mannkynista. Hópur sem berst á móti rasisma, órétti í lögum, brot á mannréttindum og allt það ljóta sem enn er við líði.
Ég hef aldrei talið mig til feminista. Ég tel alla hafa sömu réttindi til að standa sig í lífinu. Ég er ekki með meira próf í lífinu og geri mér grein fyrir því þegar ég fæ kaupið mitt, en að sama skapi tel ég að vöntun á innkomu mína sé ekki vegna þess að ég er kona.
Ljót og fjandsamleg orð í garð karla eða konu er ekki það sama og réttindi fyrir þessa hópa.
Konur sem börðust fyrir jafnrétti, hér áður fyrr, voru fangelsaðar og þeim bannað að tjá sig ekki taldar hæfar til að stjórna landi, keyra bíla, skrifa bækur eða kjósa. Okkur átti að nægja, að eiga menn sem gerðu þetta fyrir okkur.Tíminn var annar og létu þeir eftir konum að stjórna heimili, þvo fötin, ala börnin og elda matinn. Sem sé rekstur heimilisins líkt og rekstur þeirra á fyrirtækjum og stjórnun á alþingi.
Í dag er heitið " húsmóðir " úrelt og bannorð.
En kíkjum á hvað húsmóðir starfar við, séð frá mínum dyrum;
Rekstur heimilis, sem sé stjórnun. .
Bókhald sem kostar milljónir að læra.
Þrifnaður og þvottur sem sumir greiða stórar upphæðir fyrir.
Matreiðsla og veisluhöld sem, já sumir fóru í skóla til að læra.
Hönnun á heimili sem kostar mega money að kaupa hjá fagmanni.
Bílstjórar án meiraprófs.
Það má bæta við þetta að karlar, áður fyrr, völdu vinnumarkaðinn til að sjá fyrir heimilinu svo að konan gæti rekið heimilið. Ég tel að þannig studdi karlmaður konuna.
Ofbeldi, nauðgun, fjandsamleg framkoma og dónaskapur við konur er álitið rangt af báðum kynjum. Naugðun er fjandskapur og á sér engann stað í góðu samfélagi. Það er sagt að nauðgun sé morð á sál og að fólk nái sér aldrei. En nauðgun á sér engan þátt í barráttu kvenna til jafnréttis. Nauðgun er glæpsamleg hegðun sem sjúkt fólk framkvæmir. Sjúkt fólk sem á að eiga yfir sér jafnan dóm og manndráp gerir. En fyrst þarf að sanna það, samkvæmt lögum, eins og svo marga aðra glæpi sem þarf að sanna fyrir dómi.
Ef þú lesandi ert enn að segja hommabrandara eða nota orð eins og hommatittur eða lessur ert þú í hópi rasisma. Þar gæti hópur mannkynista beitt sér fyrir að eyða þessum fordóm.Ef þessi skrif berast til Hildar, langar mig að spyrja hana hvort hún sé að verja þennan hóp eða er hún ein af þeim sem hlær eða notar lýsingarorð sem meiða og níða.Er hún að berjast fyrir öllum hópum eða er þetta bara um konur og framkomu við þær. Ég býð henni í mannkynista hópinn.
Svo er hópur fólks að gagnrýna Vigdísi af orðum hennar. Mér finnst það sem hún skrifar sé í rétta átt í það að koma á jafnrétti. Hún bendir á að passa okkur að fara ekki of langt í þessari baráttu við hvort annað. Að fara ekki í öfgar og jafnvel setja konur í sama hóp manna sem beittu konum óréttlæti í denn tíð. Hún er ekki að fordæma feminista heldur bara að benda á öfgar í þeirra hópum. Þar er ég sammála henni. Ég býð henni í mannkynista hópinn.
I am all woman...hear me roar J but I love men just the same !!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2012 | 19:59
Ef ég fengi tækifæri á að ræða við Snorra.....
Ég heyri að: Samkynhneigð er synd. Þeir þurfa ekki að flagga kynhneigð sinni. Ekki kyssast opinberlega. Ekki sýna atlot innan um fólk.
Eiga sem sé að halda sig í skápnum. Við erum sátt við samkynhneigð en ekki ef við þurfum að horfa á það.
Dansarar, snyrtisérfræðingar og fatahönnuðir eru allir hommar? Ógerlegt að þeir séu fótboltamenn,. Pípulaggningarmenn, smiðir, stjórnmálamenn, forsetar, kennarar, hermenn, vörubílstjórar, lögfræðingar, löggur eða stjórnmálamenn! Í augum samfélagsins eru þeir fyrst og fremst hommar og eiga ekki að eiga sér drauma né þrár. Þeir eiga ekki dreyma um að eiga fjölskyldu og þetta venjulega líf. Þá séu þeir ekki hommar.
Ég er móðir samkynhneigðs manns og líð stundum órétti og heimskutal og þori ekki að neita fólki skoðun þeirra. Þegar sonur minn fæddist, lofaði ég að vernda hann með lífi mínu. Ég sat og horfði á hann og fannst hann fallegastur. Ég lofaði að kenna honum að taka sínar eigin ákvarðanir, að vera sjálfstæður. Að allt sem hann tæki sér fyrir hendur, gerði hann vel eða sleppti því. Að standa upp fyrir fólki og vernda það. Að vera góður fólki.
Hann gerir okkur, foreldra hans, hreykin á hverjum degi og ást okkar af honum dvínar aldrei. Þegar hann kom út úr þessum skáp, sem allir tala um, elskuðum við hann heitar og aftur lofaði ég að vernda hann. Reyndar datt mér aldrei í hug að ég þyrfti að vernda hann fyrir Biblíunni, Snorra, Árna eða Gunnari. Ef ég fengi tækifæri á að ræða við þessa menn myndi ég sleppa því. Ég trúi því að Guð treysti mér fyrir syni mínum. Hann vissi að ég myndi ekki yfirgefa hann eða hætta að elska hann. Ég er auðmjúk Guði og þakka honum fyrir traustið sem hann sýnir mér. Að hann valdi mig til að hugsa um barnið Hans. Ef ég fengi tækifæri á að ræða við Guð, myndi ég spyrja hann um Snorra, Árna og Gunnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þú spyrð kannski afhverju ég sé að íhuga þessa hluti? Jú það er nefnilega þannig að í gær sat ég ein heima, orkulaus og uppgefin. Ég nennti ekki að fara út að borða eða hvað það er sem fólk leyfir sér um helgar. Í dag á ég pening til að leyfa mér að njóta. En ég held utan um þá og þori ekki að leyfa mér neinn unað. Í dag langar mig að fara og versla kannski eina flík en velti því fyrir mér að eflaust skulda ég þennan pening einhverstaðar og er búin að gleyma því, eflaust af orkuleysi. Ég hef ímugust á pollýönnu dæminu og finnst það afneitun á því að þurfa að takast á við lífið. Fólk gleymir því að Pollýanna, þessi eina sanna, gerði eitthvað í vandræðum sínum. Hún sagði ekki bara; ég tek þessu með jákvæðninni, heldur gerði hún og tók ákvarðanir um að laga ástandið.
Ég er ekki að vorkenna mér en ég gerðist sjúklingur fyrir 8 árum. Fékk flogaveiki vegna heilaaðgerðar. (slagæðagúlp,sem ég pantaði ekki úr bækling og á skilið bætur fyrir). Ég get ekki unnið við vinnuna sem ég vann við áður, heldur vinn rétt yfir 50% vinnu og fæ skuldir frá ríkinu, vegna aðstoðar þeirra. Á mánudaginn ætla ég að fara og afþakka þeirra aðstoð (peningalega séð). Ég ætla að biðja þá um að setja aurana upp í skuldina þar til hún er greidd.
Mig langar í föt, mig langar í góðan bíl, mig langar í mat á hverjum degi, mig langar í betri heilsu, mig langar að fara á hljómleika, mig langar á ball, mig langar út að borða, mig langar í hárklippingu og litun, mig langar í sparikápu, mig langar í gallabuxur, mig langar í skó, mig langar að vinna við það sem ég lærði, mig langar í svo margt....þess vegna er ég að íhuga að skella mér í lífið aftur og gera allt sem mig langar til að gera. Á ensku er orðið surrender, (uppgjöf) orð sem stríðsmenn notuðu þegar þeir voru komnir í klípu, því þeir vildu lifa.
"Hvaða heilv...sjálfselska er þetta í þér stelpa, svona haltu áfram að grafa ......."
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2012 | 15:42
aldurstakmark á áhorf skaupsins......18 ára.
Óska öllum Farsældar á þessu ári 2012 !!
Síðan að ég kom heim fyrir 6 árum hef ég reynt hvað ég get að horfa á Skaupið með jákvæðni. Þetta árið gekk mér bara þokkanlega vel. Hló svona 3svar.
Ég er þeirra skoðunnar að skaupið væri betra ef það fengjust betri leikarar til að leika í þessu og fleiri kæmu að skrifum þess. Einnig ætti að vera nefnd sem myndi dæmi um hvað er í lagi að sýna og hvað ekki. Veit ekki hvenær þeir ákváðu að setja skaupið í hendur leikstjóra sem misskilur tilgang af skaupi og leikara sem eru ekki grín leikarar. Ég hélt það ætti að skemmta mér. Að auka við gleði kvöldsins. Að minna á mannlegu hliðina á öllu sem við erum að rifja upp á árinu og getum hlegið af.
Mér finnst alltaf að ég sé að horfa á meinyrði, niðurlægingu og .....
Sé það rétt að við eigum að enda kvöldið með klukkutíma einelti, svona rétt fyrir enda ársins, vil ég fá að hafa eitthvað um það að segja. Má ég biðja um að val á leikstjórn og leikurum verði í höndum þeirra sem lifa ekki í fjölmiðlum og skítkasti allt árið og búa svo til snilldar vitleysu og bjóða okkur upp á þessa súpu sem óbragð er af.
Meira segja væri betra að horfa á (stand up) grínista. Við eigum fullt af grínleikurum hér á landi og mig langar næst að sjá þá bæði í leik og riti á skaupinu.
Svo eru það alltaf einhverjir sem segja : hey þetta er fyndið, ef þú ert með svartan hjúmor.
Hey þú hefur bara engann skilning á þessu.
Þú hefur engan hjúmor.
Hættu þá bara að horfa.....
Ég greiði fyrir þetta og ég vil geta horft á skaupið.
T.d af ríkissjónvarpi að vera, finnst mér að orðin fuck og shit ekki eiga þar heima, nema að við viljum setja aldurstakmark. Einnig grín af sorgum manna það er alltaf óviðeigandi í gleði.
Nóg af rausi....var búin að lofa sjálfri mér að eyða ekki meiri tíma í að láta pirrast af öðrum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.12.2011 | 11:57
Skemmtileg jólasaga og nýjar hefðir.
Ég er öll fyrir hefðir en finnst þær stundum hefta og binda okkur við það sama ár eftir ár. Þegar hlutir mistakast verður fólk sárt. Þessi jól ákvað ég að vera heima hjá mér og bjóða fjölskyldu bróður míns, sem féll frá fyrir rúmlega 2 árum. Svo bauð ég elstu systur minni sem venjulega heldur jólin ein. Ég keypti kjötið og hin sáu um meðlætið. Um daginn keyrði ég út pakka og náði svo í systur mína og svo var haldið heim að elda. Ég eldaði minn part en aldrei kom restin. Við biðum þar til hálf 6 en þá fór ég að setja saman meðlætið. Klukkubjöllurnar byrjuðu og hringdu með látum, eins og hefð segir til, því án þeirra væru engin jól :)
Svo mætti restin þegar hljómurinn var að enda og við óskuðu hvort öðru gleðilegra jóla. Sonur minn hafði hlakkað mikið til að fá frændsystkini sín og var orðinn svolítið þungbúinn. Ég andaði léttar, allir komnir. Þegar ég svo leit í augu þeirra sá ég sorg og sá að mágkona mín átti erfitt. Ég brosti og faðmaði hana og sagði nú gleðjumst við í kvöld og og höfum þetta eins og við viljum.
Á meðn ég og mákona kláruðum að elda matinn horfðu hin á bíómynd, um fjölskyldufaðir sem var svo ákveðinn í að halda alvöru jól, en hlutirnir fóru á annan veg. ( Lampoon christmas vacation) Svo var myndin pásuð og sest að borði. Skáluðum fyrir jólunum og allir sáttir. En í miðjunni á þessu uppgötvaðist það að við gleymdum kartöflunum. Í staðinn fyrir að verða leið, hlógum við og ákváðum að þetta yrði ný hefð, að hafa ekki kartöflur með matnum þar sem nóg var af öðrum kræsingum. Allir sáttir. Eftir matinn var haldið áfram að horfa á myndina. Ég fór að sýsla í eldhúsinu og tek eftir einu vínberi sem lá þarna, waldorfinn hafði gleymdst. Ég vildi ekkert segja en þegar myndin endaði og hugað var að eftirréttinum tilkynnti ég að það væri auka eftirréttur, sem sé waldorfinn. Mágkona mín sprakk úr hlátri og svo tóku allir undir og úr varð eitt af því skemmtilegasta jólakvöld sem ég hef upplifað í langann tíma. Pakkar opnaðir með kátínu og gleði.
Eftir á að hyggja tel ég að okkur voru send skilaboð frá mömmu og bróður mínum að henda öllum hefðum út og njóta þess að vera saman. Eitthvað segir mér að þau áttu hlut í því að hlutirnir fóru svona. Ég hef ákveðið að framvegis held ég jól án hefða og breyti um lit á jólatrénu á hverjum jólum.
Mákona mín er búin að kynnast yndislegum manni og var hann með okkur og held ég að hann hafi skemmt sér konunglega. Ég býð honum hjartanlega velkominn í fjölskylduna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2011 | 09:30
Getur þú breytt einhverju í fari þínu til að bæta líf þitt ?
Hvað er það sem veldur offitu ? Hér eru 10 hlutir sem valda henni og eru stærstu orsökin á offitu.
- matur of stórir skammtar og sykurát
- hreyfingarleysi
- stress og svefnleysi
- við eldum ekki fyrir okkur sjálf
- við eltum tísku í mat ( hollusta ) og borðum mikið af honum
- við borðum á vitlausum tíma ( t.d seint á kvöldin )
- við borðum til að þóknast öðrum og borðum tvísvar ....
- borðum á hlaupum
- kaupum mat á sama stað og við kaupum bensínið
- erfði fitu frá mömmu, pabba, ömmu ........
Hugsið um þessar spurningar og sjáið hvort eitthvað á við ykkur. Ef svo er þá er auðvelt að breyta til. Skrifið niður hegðun og svo breytingu og gerið samkvæmt henni. Bara að breyta nokkru í hegðun okkar, gerir munin í að ná árangri.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2011 | 09:09
..ég skal fara aftur erlendis ef það hjálpar...
Ég var spurð um daginn, hvenær ég flutti aftur heim og ég svaraði; desember 2005 og 2 árum seinna hrundi allt.... Þið sjáið, áður en ég pakkaði öllu saman, seldi eignir og flaug hingað heim....gekk sú saga að hér blómstraði allt, allir ríkir, fullt af nýjum fyrirtækjum, verslunum, bönkum, fullt af sjónvarpsstöðvum, fréttir allan daginn, allir fá lán....4 líkamsræktir, sem sé nóg af öllu. En nú er tíðin önnur og ég er hreynlega farin að taka þetta persónulega... en ef einhver vill kaupa miða og mínar eignir aftur.....þá skal ég fara !! :)
Ég grínist nú en ......
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2011 | 10:27
Bílaviðgerðir ekki fyrir konur ......
Í síðustu viku lenti ég í því að þurfa fara með bílinn í viðgerð....nei heyrðu síðustu 3 mánuðina hef ég þurft að fara með bílinn í viðgerð. þetta er 11 ára gamall bíll sem er ekki gamalt í hunda árum, en hvað með það, ég hef aldrei lent í þessu og vona að ég lendi aldrei í þessu aftur, ef ég fæ við því ráðið.
Aldur bílsins er ekki málið heldur aðferð bílaþjónustunnar við bílinn og mig. Fyrst fór ég með bílinn að láta setja nýtt pústkerfi, ss allt nýtt undir bílinn. Svo þurfti ég að fara aftur með sama hlutinn og svo aftur. Skýring frá þeim; gleymdum þessum hlut, settum ekki nýja klemmu, krókurinn ekki beygður aftur...og jú stykkið sem ég kom í fyrstu til að láta laga....gleymdist allveg. Í þeirri ferð skiptu þeir um hjólegu, spindil og bremsuborða. (voða finnst mér ég orðin klár í bílamáli :) Kom í ljós þeir gerðu við ...röngu meginn, rugluðu saman hægri og vinstri. Týndu svo skoðunarpappírnum. Önnur ferð fyrir það sama. Svo fór önnur hjólega og var gert við, en svo festist dekkið í keyrslu og ég fór með hann aftur og þá gleymdist að skipta um ...... ok þarf ég að segja meira, held ekki.... you get the picture :)
Nú ætla ég ekki að segja að menn lendi ekki í þessu en ég held það sé minna um það. Ég hef farið núna síðan í ágúst 8 sinnum inn á verkstæði. Það gerir um ...drum roll....180 þús í tímavinnu handa þeim, wooph wooph. Ég er enginn sérfræðingur en hefði ekki verið betra að skoða bílinn allveg og gera við það sem gera þurfti, klára verkin og minnka þannig tímavinnuna, og ég tala ekki um vinnu tap mitt og vesen við að hafa ekki annan bíl.
En svo fer ég með bílinn í langþráða skoðun, eftir alla viðgerðina, meira segja öll ljós á bílnum. Þegar þangað er komið, segir stelpan mér að það kosti mig 20.000 að láta skoða, það séu þessi gjöld og önnur. Málið er að ég átti að koma með hann í endurskoðun í enda ágúst....Sjá að ofan afhverju ég komst ekki fyrr. Ég reyndi að útskýra svo hún gæfi mér kannski séns en hún tilkynnti mér að sýslumaðurinn á Blöndósi ætti peninginn. ? Ok allt gott og blessað. En svo var það skoðunin sjálf. Fékk ekki skoðun og ástæðan sú að þeir ( viðgerðarmennirnir ) kláruðu ekki verkið, sem sé á hjólegunni sem þeir áttu að skipta um. Nú var kella orðin reið og keyrði eins og naut niður á verkstæðið og stóð þar með tárin í augum þar sem þeir, núna, könnuðust ekki við viðgerðina. Ég keyrði í hasti heim og náði í kvittunina sem sýndi viðgerðina, en kom þá í ljós röng hjólega. Æ Æ greyin. Þeir tóku hann strax og löguðu...fyrir 22000 kr. Í milli tíðinni fór ég upp í ...... og reyndi að fá afritið af síðustu skoðun og var sagt að það sé komið í geymslu, og ekkert hægt að sjá á tölvunni. ? Ætla ekki að eyða orðum yfir því. Þá segir hann, sem hann hefði getað gert fyrr um daginn, : ég læt þig bara fá skoðun og þú kemur seinna og sýnir mér....(framhald seinna þegar ég er búin að ná mér eftir þessa upprifjun,)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2011 | 09:50
Jákvæðnin farin, eins og svo margir, til útlanda.....
Jákvæðni er undirstaða okkar í lífinu en núna er farið að grafa undan henni. Pólitík, einelti, óhæft fólk, tjöld á austurvelli, útlendingar að týnast á fjöllum, perraskapur, kynferðisofbeldi, biskupar, Jóhanna, dýrtíðin, lánin, vextirnir, bankarnir, þjónusta eða óþjónusta, spítalar, læknar, hárgreiðslustofur, tungumálið, skólarnir, Harpan....ég veit að ég er að gleyma einhverju...listinn er eflaust lengri.
Ef ég mætti þá hef ég nokkrar tillögur.
- Pólitík : Gefa Ólafi leyfi til að leysa þing og byrja aftur. Hafa bara tvo flokka, með og móti.
- Einelti : Taka völdin aftur sem foreldrar og stjórnendur og hegna fyrir verknað.
- Óhæft fólk : Reka það.
- Tjöld á Austurvelli : Setja skilti upp sem á stendur, bannað að tjalda, sekt við.
- Útlendingar : You are on your own, so take care and dont travel alone, read the brochure.
- Perraskapur : Fangelsi ef sannað og brottrekstur frá vinnu og eða skóla.
- Kynferðisofbeldi : Læra að þekkja merkin og lengja fangelsisvist, svona 16 ár, því gerandinn er búinn að drepa sál þolandann.
- Biskupar : Naflaskoðun og brottrekstur ef brjóta Guðs lög, sem þeir kenna okkur.
- Jóhanna : Ekki kjósa hana aftur.
- Dýrtíð : Hætta að versla við útlönd, hætta að flytja mat og vörur til landsins. Búum til vinnu handa okkur öllum og förum að framleiða þessa hluti sjálf.
- Lánin : ...hef ekki klú
- Vextirnir : ....hef ekki klú
- Bankarnir : Breyta lögum varðandi þá...leggjum til kosningar um að þeim verði breytt.
- Þjónusta eða óþjónusta : Versla við þá sem þjóna en sniðganga hina.
- Spítalar : Leyfa einka....ég vil borga fyrir þjónustu í dag í staðinn fyrir að borga með heilsunni seinna.
- Læknar : Borga þeim.
- Hárgreiðslustofur : Ekki versla þar sem óþjónusta finnst, sjá að ofan.
- Tungumálið : Skipa fjölmiðlum að tala hreina íslensku og syngja á íslensku í júróvisjon. Tala hreina íslensku á heimilum. Setja íslenskt tal við alla þætti og myndir. Byrja ekki að kenna ensku fyrr en um 16 ára aldur. Hætt að fara til útlanda.......I am joking ofcourse. Held bara að vanda sig í tali þar sem lítil eyru heyra til.
- Skólarnir : Foreldrar skipti því á milli sín að taka þátt í öllu og fylgjast með börnum sínum. Fá að heimsækja bekkinn, sitja einn og einn tíma. Gefa sér tíma í þetta eins og annað.
- Harpan : Kveikja í henni ..... Nei nú ég ljúga...það er orðið of seint að tala um hana.
Þetta eru bara hugmyndir sem koma upp í hugann....þar sem myndirnar koma. Ég er orðin þreytt á neikvæðinu sem virðist undirstrika allt hjá okkur, líka mér. Jólin á næstu grösum og er ég viss um að neyðin verði meiri þessi jól en fyrr. Ég nenni ekki að vera í fílu lengur, ég ætla að leggja mig fram að vera jákvæð og byrja allar setningar á að segja JÁ ...hjálpa þar sem ég get, brosa að fólki, hugga þar sem huggun vantar, bjóða mig fram í sjálfboðavinnu, hætta sjónvarps glápi, loka tölvunni og hafa hana lokaða sem mest, faðma fjölskylduna og hlæja meira. Allt annað eins og við sögðum í den tíð: ÞETTA REDDAST :) jú og eitt....kveikja kerti á hverju kvöldi og biðja minn Guð eða minn æðri, hvað sem við köllum okkar bjargvætt, um að hjálpa okkur öllum og gefa okkur frið.
Mér líður betur :) Takk fyrir að lesa !
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2011 | 09:27
Baráttan við aukakílóin, ég er með svarið...
Reyndar ekki, en ég er með kenningu sem ég hef verið að láta reyna á. Í staðinn fyrir að einblína á vigtina, fygjumst við með hvað við erum að grennast, því þessi hugtök eiga bara eitt sameiginlegt og það er að mæla árangur. Ég brýni fyrir konunum mínum að horfa í spegilinn, máta fötin, hlusta á hrós og finna velíðann sem fylgir því að borða betra ( já ég segi borða ) og hreyfa sig. Þetta er nú allur sannleikurinn. Ef við borðum fyrir einn, sleppum sælgæti/bakkelsi ( öllum sykri ) minnkum brauð át í eina á dag, líka hrökkbrauð því eins og nafnið ber til er það brauð. Minnkum mjólkurþamb, skyr, jógúrt, ost át eða veljum fituminni vörur, þá eigum við að léttast með tímanum. Ef við hreyfum okkur minnst 3 í viku, eigum við að grennast.
Ég heyri oft að konur vilji ekki vöðva. En viltu frekar fitu en vöðva? Við erum ekki í vaxtarrækt heldur líkamsrækt og þar er stór munur á. Auðvitað þyngjumst við þar sem vöðvar eru þyngri en fita, en í rest jafnar þetta sig allt út og eftir því sem við náum góðum árangri.. grennumst við og léttumst um leið.
Ertu að borða fyrir tvo ? Ertu að smakka tvisvar ? Er enginn matur á morgun ? Viltu ekki að hinir fái sinn skammt? Ertu að gera gestgjafanum til þægðar og borða yfir þig ? Færðu þér 3 kökusneiðar því annars móðgast gestgjafinn? Þorir þú ekki að segja NEI takk ég er saddur/södd ? Verður að klára af disknum ? Þegar gestgjafinn býður þér að fá þér aftur á diskinn og segir að Guð skammti þér ekki núna....reyndar hef ég aldrei skilið þessa setningu, en hvað með það, ef eitt af þessu á við þig ráðlegg ég þér að setjast niður og athuga hvort þú getir breytt einhverju, svo aðeins meira seinna osvfrv.
Við stjórnum okkar líkama. Ef ég væri sykursjúk, væri þá ekki dónalegt ef gestgjafinn ýtti að mér köku ?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

ellahelga
alit
snjolfur
naflaskodun
huxa
jonatlikristjansson
juliusvalsson
magnuss
maggadora
mofi
huldumenn
pallvil
vertinn
svanurg
viggojorgens